Málþing, námskeið og sýningar / Seminar, painting course, exhibitions
Dagskrá um listamenn á Laugarvatni fyrr og nú.
Laugardaginn 14. ágúst 2010
10 – 12 Listamenn á Laugarvatni fyrr og nú. Málþing, Hótel Eddu, (ML).
10:00 Þórarinn B. Þorláksson – málari kyrrðarinnar.
Júlíana Gottskálksdóttir listfræðingur, forstöðumaður Listasafns Einars Jónssonar.
10:30 Listamaðurinn og Laugarvatnsbóndinn
Hlíf Böðvarsdóttir rifjar upp samskipti fjölskyldna Böðvars Magnússonar og Þórarins B. Þorlákssonar. Kvikmynd. Umsjón Stefán Magnús Böðvarsson.
10:45 Gesturinn
Hugleiðing um listamenn á Laugarvatni. Jón Özur Snorrason
11:00 Að vera hér!
Hlín Agnarsdóttir rithöfundur og gestur Gullkistunnar.
11:10 Umræður
11:45 „Það er allt fallegt“
Opnuð sýning á eftirmyndum af málverkum Þórarins B. Þorlákssonar frá Laugarvatni sem flest eru í eigu Listasafns Íslands. Sýningin er undir berum himni og mun standa í eitt ár.
12:00 Súpa og kaffi, verð kr. 1500, óskast pantað við komu.
13 – 17 Meðferð vatnslita – leikur einn
Eyvindartungu, kennari Harpa Björnsdóttir. Verð: 4500, efni innifalið og kaffisopi. Nemendur mega gjarnan koma með liti og efni sem þeir eiga. 12 nemendur hámark.
Skráning: gullkistan@gullkistan.is – upplýsingar í símum 892-4410 og 699-0700
17 LANDscapeING, Raom&Loba
Opnun myndlistarsýningar í Eyvindartungu á verkum listamanna frá Frakklandi og Argentínu. Raom og Loba eru gestir Gullkistunnar.
Dagskráin er styrkt af Menningarráði Suðurlands.
Gullkistan er meðlimur í UPPLITI, menningarklasa uppsveita Árnessýslu.
Recent Comments